05.08.26 - 23:16
Helgi Inguson
Óskar Hrafn: Ég labba inn í kvöldið með bros á vör og engar áhyggjur í heiminum
Auglýsing

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR heimsótti FH í Kaplakrika í kvöld. Spilamennska liðsins var flott og KR skapaði sér urmul af færum. Leikar enduðu hins vegar 1-1. Fótbolti.net ræddi Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, eftir leik.
Lestu um leikinn: FH 1 - 1 KR
„Ég geri þetta upp sem leik sem við áttum að vinna. Við fáum færin til að vinna leikinn. Við stjórnum langstærsta hluta leiksins, þetta var leikur sem eigum eigum að klára. Við spiluðum okkar fótbolta, komum okkur í góðar stöður á síðasta þriðjungi en svo vantaði gamla herslumuninn. Þetta var stöngin út í dag," sagði Óskar.
„Auðvitað er það stundum þannig að þegar þú ert með mikla yfirburði og færð færi til þess að ganga frá leiknum en gerir það ekki þá er alltaf þessi hætta að lið komi til baka. Yfirleitt eru liðin í Bestu deildinni þess eðlis að það kemur alltaf meðbyr hjá liðum, hvort sem það er neðsta liðið á mesta efsta liðinu, þá eiga lið alltaf sín augnablik í leikjum. Þeir náðu ágætis augnabliki í kringum markið sitt. Undir eðlilegum kringumstæðum eigum við að vera búnir að gera út um þennan leik, við gerum það ekki og fáum það í andlitið."
„Þessi leikur er bara þess eðlis að ég labba bara inn í kvöldið og næstu daga með bros á vör og engar áhyggjur í heiminum," sagði Óskar að lokum sem var ánægður með spilamennsku sinna manna þó úrslitin hafi verið svekkjandi.
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum fyrir ofan