Fotbolti.net
05.08.26 - 21:46
Gylfi Már Þórðarson

Haddi: Við erum í fallbaráttu

Auglýsing
Hallgrímur Jónasson - þjálfari KA

Hallgrímur Jónasson - þjálfari KA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA-menn komu í heimsókn á HS Orku völlinn í Keflavík í kvöld og mættu heimamönnum í Keflavík í 17. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Akureyringar fara heim með tvær hendur tómar en Keflvíkingar fóru með öruggan 3-0 sigur af hólmi. Hallgrímur Jónasson kom í viðtal að leik loknum.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 0 KA
"Mér fannst við byrja leikinn virkilega vel, við vorum að komast í þau svæði og aðstæður sem við vildum en vorum ekki nógu skarpir að klára þau færi sem við fengum. Síðan skora Keflavík eitt frábært mark fyrir utan teig og svo gefum við tvö mörk, sérstaklega annað markið. Við löbbum inn í hálfleik 3-0 undir og bæði lið höfðu átt þrjú skot á markið, það er ekki alveg eðlilegt miðað við fyrri hálfleikinn. Seinni hálfleikurinn er lokaðri og við náum ekki að skapa nóg. Við þurfum að vera betri á síðasta þriðjung og taka meira afgerandi hlaup og vera hættulegri. Við erum að komast í margar stöður en ekki að skapa nóg af færum.
Mér fannst við aðeins pompa niður við að fá á okkur fyrsta markið. Það er kannski eðlilegt en við þurfum að passa upp á andlegu hliðina. Þó að þú sért búinn að spila vel og færð á þig eitt mark þá er það versta sem þú gerir að fara niður um 10-20%. Við þurfum að vinna í því og vinna í síðasta þriðjung því að bæði í þessum leik og í síðasta leik gegn Þór byrjum við leikina virkilega sterkt en klúðrum mörgum færum. Mörk breyta leikjum, ef við hefðum komist yfir hér í dag eða gegn Þór þá gæti staðan verið allt önnur. Það blæs á móti núna og við þurfum að vera sterkir og halda áfram. Það er leikur á móti FH á sunnudag heima sem er úrslitaleikur eins og flestir leikir verða núna. Það er verk að vinna núna og við þurfum að standa saman til að komast í gegnum þetta.
Við gerðum marga góða hluti og mér fannst ungu strákarnir standa sig vel. Það er alltaf eitthvað jákvætt þó að þú tapir, það er ekki alltaf allt ömurlegt og ekki heldur allt frábært þegar þú vinnur fótboltaleiki. Við þurfum að halda áfram, við vitum í hvaða stöðu við erum. Þetta er ótrúlega þétt, við erum í fallbaráttu, við þurfum að vanda okkur, hugsa um hvorn annan og þannig komumst við út úr þessu."

KA-menn sitja í 10. sætinu, einu sæti fyrir ofan fallsætin tvö. Hefur Hallgrímur einhverjar áhyggjur af því að halda starfinu?

"Mér finnst ég bara vera öruggur í starfi. KA veit nákvæmlega hvað þeir hafa í mér og ég veit hvað ég hef í þeim og ég geri mér grein fyrir stöðunni. Fólk gæti kíkt á hvað hefur verið að gerast í KA liðinu síðasta árið, það eru margir farnir út, margir komnir inn og öll meiðslin sem eru í gangi. Því miður erum við neðarlega í töflunni og við þurfum að koma okkur út úr því og ég er tilbúinn að leggja mig 100% fram til að koma KA ofar töfluna."

KA fékk til sín Óskar Arnór Morales Einarsson frá Esbjerg í glugganum. Hvert er hans hlutverk í KA-liðinu?

"Hann er ungur strákur í 2. flokki sem æfir með okkur í meistaraflokki. Hann er Akureyringur sem er kominn heim og ætlar að klára tímabilið með okkur. Það er of snemmt að segja til um hvert hlutverk hans er, staðan er núna að hann æfir með meistaraflokki en er á 2. flokks aldri. "

Allt viðtalið við Hallgrím má finna í spilaranum hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.