Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. september 2019 23:52
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: KV skoraði sex gegn KH
Björn Axel á 20 keppnisleiki að baki fyrir meistaraflokk Gróttu.
Björn Axel á 20 keppnisleiki að baki fyrir meistaraflokk Gróttu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV 6 - 0 KH
1-0 Jón Helgi Sigurðsson ('13)
2-0 Björn Axel Guðjónsson ('24)
3-0 Björn Axel Guðjónsson ('57)
4-0 Oddur Ingi Bjarnason ('83)
5-0 Tryggvi Snær Geirsson ('85)
6-0 Askur Jóhannsson ('92)

KV rúllaði yfir KH í eina leik dagsins í 3. deildinni. Staðan var 2-0 í hálfleik eftir mörk frá Jóni Helga Sigurðssyni og Birni Axeli Guðjónssyni.

Björn Axel bætti öðru marki við eftir leikhlé og bættu Vesturbæingar við þremur mörkum á lokakaflanum.

KV er í þriðja sæti, þremur stigum á eftir KF sem á leik til góða.

KH er fjórum stigum fyrir ofan Augnablik í fallsæti. Augnablik á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner