Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. september 2019 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ramsey ekki með í kvöld - Shaqiri einbeitir sér að Liverpool
Ramsey aflitaði hárið á sér árið 2016.
Ramsey aflitaði hárið á sér árið 2016.
Mynd: Getty Images
Wales mætir Aserbaídjan í undankeppni EM2020 í kvöld.

Liðið verður án Aaron Ramsey sem er að jafna sig á nárameiðslum sem hann varð fyrir í apríl. Þá er Ashley Williams, miðvörðurinn reynslumikli, ekki í hópnum.

Ramsey spilaði 20 mínútur fyrir Juventus á undirbúningstímabilinu í sumar en hefur ekki spilað í deildinni hingað til.

Wales tapaði gegn bæði Ungverjum og Króötum í síðustu landsleikjum og þarf því nauðsynlega að sigra í kvöld ætli liðið sér áfram úr E-riðli.

Shaqiri einbeitir sér að Liverpool
Xherdan Shaqiri ákvað að taka sér frí frá landsliðsverkefnum Sviss í þessum glugga og einbeita sér að stöðu sinni hjá Liverpool.

Shaqiri hefur ekki komið við sögu í úrvalsdeildinni í vetur og ákvað að vera í Liverpool í hléinu til þess að reyna að vinna sig í liðið hjá Jurgen Klopp.

Sviss gerði í gær svekkjandi 1-1 jafntefli á útivelli gegn Írlandi og saknaði liðið Shaqiri í leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner