06.09.26 - 15:24
Brynjar Ingi Erluson
Diljá bikarmeistari eftir endurkomu - Karólína Lea skoraði úr víti

Diljá er norskur bikarmeistari

Mynd: Brann

Karólína Lea skoraði fyrir Inter

Mynd: Inter

Diljá er norskur bikarmeistari

Mynd: Brann

Diljá Ýr Zomers varð í dag bikarmeistari með norska stórliðinu Brann eftir að hafa unnið 3-1 sigur á Álasundi á Ullevaal-leikvanginum í Osló.
Diljá var á sínum stað í byrjunarliði Brann sem lenti óvænt undir gegn Álasundi. Nýliðarnir hafa komið á óvart í norsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Brann var þó fljótt að svara fyrir sig. Lauren Davidson jafnaði á 14. mínútu og Amalie Eikeland kom liðinu yfir tveimur mínútum síðar. Brenna Lovera, fyrrum leikmaður ÍBV og Selfoss, bætti svo þriðja markinu við eftir hálftíma leik og þar við sat.
Diljá fór af velli á 67. mínútu en Daníela Dögg Guðnadóttir sat allan tímann á bekknum hjá Álasundi.
Þetta er annar titill Diljár með Brann en hún varð deildarmeistari með liðinu á síðasta ári.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði úr vítaspyrnu í 3-1 sigri Inter á Lazio í Seríu A-bikarnum. Hún jafnaði metin á 40. mínútu áður en Inter bætti tveimur mörkum við í síðari hálfleik.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð á milli stanganna hjá Inter sem vann riðil sinn með fullt hús stiga.
Birta Georgsdóttir var í byrjunarliði Parma í 1-0 tapi fyrir Napoli. Parma endaði á botni riðilsins án stiga.
Í sænsku úrvalsdeildinni gerðu meistarar Häcken 1-1 jafntefli við Malmö. Thelma Karen Pálmadóttir byrjaði hjá Häcken en Hlín Eiríksdóttir var í liði Malmö. Häcken er á toppnum með 46 stig en Malmö í 3. sæti með 30 stig.