Fotbolti.net
06.09.26 - 11:02
Brynjar Ingi Erluson

„Þetta er ekki Football Manager“

„Þetta er ekki Football Manager“
Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir að það muni taka tíma fyrir liðið að smella saman.
Tottenham bíður enn eftir fyrsta deildarsigri tímabilsins og hefur það sem verra er ekki skorað eitt einasta mark.

Liðið gerði markalaust jafntefli við Nottingham Forest í gær eftir töp gegn Newcastle og Brentford í fyrstu tveimur umferðunum.

De Zerbi segist þó ekki hafa áhyggjur og var ánægður með frammistöðu sinna manna.

„Við keyptum ótrúlega góða leikmenn en það er ekki hægt að byggja lið á nöfnum einum saman eins og í Football Manager. Við erum vonsviknir með úrslitin en ég var mjög ánægður með frammistöðuna, sérstaklega í ljósi þess að við byrjuðum ekki að vinna saman sem hópur fyrr en síðasta fimmtudag.“

„Við verðum að bæta okkur á öllum sviðum, þar á meðal skipulagið með og án bolta. Mér fannst við samt verjast vel í þessum leik.“

„Við þurfum að leggja enn meira á okkur. Mér fannst við spila vel með boltann og finna lausnir en við getum verið mun skilvirkari á síðasta þriðjungi vallarins.“

„Við fengum færi, meðal annars þegar Marmoush átti skot, og Robertson tók hlaup utan á. Ef við tökum réttar ákvarðanir og nýtum Robertson þannig er Kudus tilbúinn hinum megin til að skora.“

„Ég er ánægður með andann og skipulagið. Leikstíll þeirra er mjög skýr, með löngum boltum og baráttu um seinni boltana, en við unnum mörg þeirra einvígja. Þeir eru með góða leikmenn.“

„Það er því alls ekki auðvelt að ná í stig á þessum velli. Við erum ekki ánægðir því við unnum ekki leikinn en andinn er réttur og þetta er allt á réttri leið,“
sagði De Zerbi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.