Fotbolti.net
06.09.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Casemiro og Suarez á skotskónum í jafntefli

Casemiro og Suarez á skotskónum í jafntefli
Canon

Mynd: EPA

Inter Miami hefur verið í brasi að undanförnu í MLS deildinni en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum.

Liðið fékk Atlanta United í heimsókn í nótt. Casemiro kom liðinu yfir eftir undirbúning Lionel Messi og Suarez skoraði annað markið undir lok fyrri hálfleiks.
Miguel Almiron jafnaði metin í 1-1 og Breel Embolo bjargaði stigi fyrir Atlanta með marki úr vítaspyrnu undir lokin. Þetta var fyrsti leikur Embolo fyrir liðið en hann gekk til liðs við félagið frá Rennes en hann kom að fjórum mörkum fyrir Sviss á HM í sumar.

Inter Miami er í 2. sæti Austurdeildar með 43 stig, tíu stigum á eftir Nashville. Atlanta er í 14. sæti með 22 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.