Fotbolti.net
06.09.26 - 13:38
Brynjar Ingi Erluson

Getur ekki lofað að Olise verði áfram hjá Bayern á næsta tímabili

Michael Olise

Michael Olise

Canon

Mynd: EPA

Jan-Christian Dreesen, framkvæmdastjóri Bayern München, segist ekki geta lofað að franski landsliðsmaðurinn Michael Olise verði áfram hjá félaginu á næsta tímabili.
Olise var stórkostlegur með Bayern á síðustu leiktíð og sterklega orðaður við Real Madrid í sumar.

Ekkert tilboð barst þó í hann og Bayern ítrekaði að hann væri ekki til sölu, jafnvel þótt 200 milljónir evra yrðu boðnar.

„Það var enginn sannleikur í þessu og þess vegna tjáði ég mig opinberlega um málið. Við fengum ekkert tilboð og sögðum frá upphafi að við hefðum engan áhuga á viðræðum.“

„Þannig er staðan hjá okkur. Olise er ótrúlega mikilvægur fyrir liðið. Hann gerir töfra á vellinum.“

Staðan gæti þó breyst á næsta ári og Dreesen vill engu lofa um framtíð Frakkans.

„Það er erfitt að lofa einhverju í svona málum. Hvort við höldum honum áfram er eitthvað sem verður rætt aftur næsta sumar,“ sagði Dreesen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.