Fotbolti.net
06.09.26 - 16:44
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía: Þrjú töp í röð hjá Þóri og Venezia

Þórir bíður enn eftir tækifærinu með Venezia í deildinni

Þórir bíður enn eftir tækifærinu með Venezia í deildinni

Canon

Mynd: Venezia FC

Þórir Jóhann Helgason og félagar hans í Venezia töpuðu þriðja leiknum í röð er liðið lá fyrir Frosinone, 3-2, í 3. umferð Seríu A í dag.
Venezia tapaði fyrir Lecce og Milan í fyrstu tveimur deildarleikjunum án þess að Þórir kæmi við sögu. Hann sat aftur allan tímann á bekknum í dag.

Antonio Raimondo kom heimamönnum í Frosinone í 2-0 með tveimur mörkum á átján mínútna kafla í fyrri hálfleik. Venezia svaraði um miðjan síðari hálfleik og jafnaði með mörkum frá John Yeboah og Richie Sagrado.

Gestirnir fengu hins vegar blauta tusku í andlitið þegar sjö mínútur voru eftir. Georgíumaðurinn Giorgi Kvernadze slapp þá inn fyrir vörnina og renndi boltanum undir markvörð Venezia.

Grátlegt 3-2 tap hjá Venezia sem er enn án stiga. Spurning hvort ekki fari að koma að tækifæri Þóris í deildinni.

Parma og Monza gerðu á sama tíma 1-1 jafntefli. Jay Robinson kom gestunum yfir á 38. mínútu en Simone Lontani jafnaði þegar hálftími var eftir.

Bæði lið náðu þar í sitt fyrsta stig á tímabilinu.

Frosinone 3 - 2 Venezia
1-0 Antonio Raimondo ('21 )
2-0 Antonio Raimondo ('39 )
2-1 John Yeboah ('66 )
2-2 Richie Sagrado ('74 )
3-2 Giorgi Kvernadze ('83 )

Parma 1 - 1 Monza
0-1 Jay Robinson ('38 )
1-1 Simone Lontani ('60 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter8+1322
2Lazio8+1122
3Roma8+1318
4Milan8+918
5Como8+717
6Frosinone8+414
7Juventus8+314
8Torino8+213
9Cagliari8-313
10Napoli8+311
11Atalanta8-110
12Lecce8-59
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Genoa8-77
17Udinese8-94
18Fiorentina8-104
19Parma8-104
20Venezia8-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.