06.09.26 - 16:54
Brynjar Ingi Erluson
Ótrúleg sigurganga Bayern sem hefur ekki tapað deildarleik í tæp tvö ár

Glódís er partur af mjög svo sérstöku Bayern liði

Mynd: EPA

Glódís Perla Viggósdóttir stóð vaktina í vörn Bayern München þegar liðið vann 4-1 sigur á Freiburg í þýsku deildinni í dag.
Bæjarar hafa tekið upp þráðinn frá síðustu leiktíð og unnið alla þrjá deildarleiki sína á nýju tímabili.
Japanska landsliðskonan Momoko Tanikawa skoraði tvívegis og Vanessa Gilles og Klara Buhl komust einnig á blað.
Bayern er því með fullt hús stiga en enn merkilegra er að liðið hefur ekki tapað deildarleik síðan í október 2024.
Liðið fór taplaust í gegnum síðustu leiktíð og hefur unnið 46 deildarleiki, gert fjögur jafntefli og aðeins tapað einum frá upphafi tímabilsins 2024-25.