06.09.26 - 16:50
Kári Snorrason
Rúnar: Taktík sem ég ætla ekki að nota núna
Auglýsing

„Frábært að halda út manni færri síðustu mínúturnar gegn þessu sterka Víkingsliði.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jöfnunarmarki Fram fagnað innilega.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Einar skoraði eftir langt innkast.

Víkingur og Fram skildu jöfn að í Víkinni fyrr í dag. Leikar enduðu 2-2 en Framarar léku manni færri síðustu 20 mínúturnar eftir að Ægir Jarl Jónasson fékk að líta rauða spjaldið.
Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram, að leik loknum.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 Fram
„Við vitum alveg hvar markið er, það er yfirleitt fast þarna við endalínuna. Það hefur oft verið gott að koma boltanum fyrir það og berjast um hann þar,“ sagði Rúnar aðspurður um hvort lögð hafi verið áhersla á löng innköst komandi inn í leikinn.
Fyrra mark Fram kom eftir langt innkast en það síðara eftir stutt innkast. Þá fékk liðið einnig gott færi sem fór forgörðum eftir langt innkast.
„Við getum sagt að þetta séu góð mörk en öll mörk telja. Það skiptir mig engu máli. Þetta er eitthvað sem við erum búnir að vinna með. Öll lið í heiminum gera það hvort eð er,“ sagði Rúnar jafnframt um innköstin löngu.
Gerist margoft í leik
Fyrra gula spjald Ægis Jarls var eftir skallabaráttu við Karl Friðleif snemma leiks. Rúnar var spurður hvað honum .þætti um þann dóm.
„Mér finnst fyrra spjaldið svolítið soft. Hann hoppar miklu hærra en Karl Friðleifur. Svo hoppar Karl upp í hendina á Ægi - hver er að leitast eftir snertingunni? Karl er ekki að leika neitt, auðvitað rekast þeir saman en þetta gerist margoft í leik.
Það var kannski full snemmt að spjalda þetta því hann sleppir öðrum eins atvikum sem verðskulduðu spjald í leiknum. Það kom aðeins niður á okkur. Engu að síður frábært að halda út manni færri síðustu mínúturnar gegn þessu sterka Víkingsliði.“
„Auðvitað eiga þeir að vinna mótið“
Óskar Hrafn Þorvaldsson gekk svo langt að óska Víkingi til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn í viðtali við Fótbolta.net fyrir viku síðan. Tekur þú undir þau orð?
„Nei, við vitum að Víkingar eiga greiða leið að titlinum en þeir þurfa að hafa fyrir hlutunum. Það er erfitt að landa þessu, þú þarft að halda áfram að vinna fótboltaleiki. Það er spennustig fyrir hvern einasta leik sem þeir þurfa að hafa í lagi.
Við hin liðin þurfum að stríða þeim aðeins til þess að halda lífi í þessu móti. Það á jafnt við um liðin á botninum og toppinum. Farandi inn í úrslitakeppnina og þeir átta stigum á undan, auðvitað eiga þeir að vinna mótið. En við óskum þeim ekki til hamingju strax, það er einhver taktík sem ég ætla ekki að nota núna.“