Fotbolti.net
06.10.26 - 12:06
Elvar Geir Magnússon

Forseti Eistlands brýtur blað með því að mæta á leikinn gegn Íslandi

Alar Karis, forseti Eistlands, mætir á leikinn í kvöld.

Alar Karis, forseti Eistlands, mætir á leikinn í kvöld.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Alar Karis, forseti Eistlands, mætir á Þjóðadeildarleik Eistlands og Íslands sem fram fer á A. Le Coq leikvangnum í Tallinn í kvöld.

Fjölmiðlar í Eistlandi greina frá því að Karis muni mæta ásamt eiginkonu sinni, Sirje Karis, og þetta verði í fyrsta sinn sem hann mætir á landsleik Eistlands síðan hann tók við sem forseti 2021.

Fyrir leikinn munu hjónin heimsækja eistneska fótboltasafnið og taka þátt í athöfn þar.
Ísland í dag - Heimsókn til Eistlands
TENGT EFNI

Ísland í dag - Heimsókn til Eistlands

Ísland er á toppi riðilsins með sjö stig, tveimur stigum á undan Eistlandi sem situr í 2. sæti. Efsta lið riðilsins tryggir sér sæti í B-deildinni en liðið sem hafnar í öðru sæti fer í umspil um sæti í B-deild.
A. Le Coq leikvangurinn í Tallinn.

A. Le Coq leikvangurinn í Tallinn.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.