Fotbolti.net
06.10.26 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fred um metnaðarleysi Jhon Durán: Búinn að bjarga næstu kynslóðum

Fred um metnaðarleysi Jhon Durán: Búinn að bjarga næstu kynslóðum
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Fred hefur tjáð sig um fyrrum liðsfélaga sinn hjá Fenerbahce, kólumbíska framherjann Jhon Durán sem lék áður hjá Aston Villa.
Jhon Durán í Benfica (Staðfest)
TENGT EFNI

Jhon Durán í Benfica (Staðfest)

Durán raðaði inn mörkunum með Aston Villa áður en Al-Nassr keypti hann fyrir tæpar 70 milljónir punda í janúar 2025. Hann skoraði 12 mörk í 18 leikjum á hálfu ári með Al-Nassr en var svo lánaður til Fenerbahce um sumarið.

Durán skoraði 5 mörk í 21 leik með Fenerbahce áður en tyrkneska stórveldið skilaði honum til Al-Nassr, sem lánaði hann svo til Zenit í Rússlandi.

„Jhon Durán var alveg sama um allt. Ég sagði honum að koma að hlaupa aðeins með mér og hann svaraði: 'Bróðir, ég er nú þegar ríkur. Ég þarf ekki að hlaupa.' Svo hélt hann bara áfram að slóra," sagði Fred.

„Þegar það kom í ljós að hann væri á leið til Zenit sagði ég: 'Ooo, núna muntu græða enn meiri pening!' og hann svaraði: 'Bróðir, því meiri peningar því betra. Því meira því betra.'

„Við spjölluðum stundum um peningamál og þá sagði hann: 'Ég er nú þegar búinn að bjarga mínu eigin lífi, lífi fjölskyldu minnar og næstu þriggja kynslóða.'"
Fred um metnaðarleysi Jhon Durán: Búinn að bjarga næstu kynslóðum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.