Fotbolti.net
06.11.19 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Rashford: Ekki ómögulegt að enda í topp fjórum

Rashford: Ekki ómögulegt að enda í topp fjórum
Canon

Mynd: Getty Images

Marcus Rashford, framherji Manchester United, segir að það sé ekki ómögulegt fyrir liðið að enda í einu af fjórum efstu sætunum í ensku úrvalsdeildinni og ná Meistaradeildarsæti.

Eftir brösuga byrjun á tímabilinu er Manchester United með þrettán stig í tíunda sæti, tíu stigum frá topp fjórum.
„Þetta verður erfitt (að ná í topp fjóra) en það er alls ekki ómögulegt. Við megum ekki einbeita okkur að öðrum liðum heldur verðum við að spila okkar besta fótbolta, einbeita okkur að okkur sjálfum og bæta okkur," sagði Rashford.

„Það er eina leiðin til að Man Utd spili góðan fótbolta og við þurfum að byrja að gera það aftur. Aðalatriðið er að koma til baka. Ég hugsa alltaf um heimaleiki þannig að ef þú ert orkumikill í leikjum, tekur hlaup og ert líflegur þá vinnur þú oftar en ekki."

„Old Trafford er sérstakur staður og ef við fáum stuðningsmennina á bakvið okkur þá er erfitt að mæta þangað. Þegar við spilum á því tempói sem við spilum þegar við erum upp á okkar besta þá er mjög erfitt að stöðva okkur."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.