Fotbolti.net
06.11.24 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Evrópudeildin í dag - Sænsku meistararnir heimsækja Besiktas

Evrópudeildin í dag - Sænsku meistararnir heimsækja Besiktas
Canon

Mynd: EPA

Það er einn leikur á dagskrá í Evrópudeildinni í dag en það verður veisla á morgun þar sem 17 leikir verða á dagskrá.

Leikur dagsins fer fram í Tyrklandi þar sem heimamenn í Besiktas fá sænsku meistarana í Malmö í heimsókn.

Malmö varð sænskur meistari á dögunum en aðeins einn leikur er eftir af deildakeppninni í Svíþjóð. Liðið er með þrjú stig eftir þrjár umferðir í Evrópudeildinni.

Besiktas kemur inn í leik dagsins með tvo tapleiki í röð á bakinu í tyrknesku deildinni en liðið náði í sín fyrstu stig í Evrópudeildinni í síðustu umferð þegar liðið lagði Lyon af velli.

EUROPE: Europa League, League Stage15:30 Besiktas - Malmö

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.