06.11.26 - 10:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
FH-ingar þurfi að ræða við Hafnarfjarðarbæ

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH og Þór mættust á Þróttarvelli í Laugardal.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Úr leik FH og Fram, lokaleik tímabilsins 2025.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hybrid grasið hjá FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Um þar síðustu helgi átti FH að taka á móti Þór á Kaplakrikavelli í lokaumferð Bestu deildarinnar. Það var ekki hægt þar sem völlurinn var frosinn og er hann ekki upphitaður. Því var spilað á heimavelli Þróttar í Laugardal.
Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, um framtíð vallarins.
FH-ingurinn Jóhann Ægir Arnarsson gerði rannsókn á úrslitum úr leikjum í efstu tveimur deildum karla á árunum 2022-2025 í rannsókninni kom í ljós að hæsta sigurprósentan var hjá liðum sem spila heimaleiki sína á gervigrasi þegar gestalið sem spila sína heimaleiki á náttúrulegu grasi komu í heimsókn.

TENGT EFNI
Sýnir fram á að graslið hagnast ekki á undirlaginu
Hafið þið farið í nánari skoðanir hvort þið ættuð að skipta yfir á gervigras?
„Nei, við höfum ekki farið nánar í það. Aðalatriðið, og það sem við þurfum að finna lausn á til lengri tíma, er að það er ekki gott fyrir okkur sem félag að spila fyrsta heimaleikinn ekki fyrr en í 5. umferð eins og raunin hefur verið, við þurftum svo að færa leikinn á móti Þór til Þróttarana, við kunnum Þrótturum bestu þakkir fyrir að taka á móti okkur. 2025 spiluðum við lokaleikinn á okkar velli og hann var allt að því óleikfær. Það er það sem við erum að skoða og verðum að finna einhverja lausn á þessu. Ég er á þeirri skoðun að Íslandsmótið eigi að vera að spilað allavega út október. Við þurfum, í samráði við bæjaryfirvöld, að finna einhverja lausn á þessu."
„Það getur alveg tekið tíma, en við þurfum að mynda okkur skoðun um þá leið sem við viljum fara og vinna það í samráði við bæinn."
FH-ingar lögðu hybrid-gras á æfingavöllinn sinn fyrir nokkrum árum síðan.
„Hybrid-gras er klárlega eitthvað sem getur virkað á Íslandi. Við sjáum það á æfingavellinum okkar að hann er ennþá iðagrænn og þokkalega þéttur núna í nóvember. Það gæti klárlega verið lausn og í fullkomnum heimi myndi maður vilja fara þá leið. Þó svo að það sé mjög skiljanlegt að langflest lið séu komin á gervigras, þá eru það næstum því tvær mismunandi íþróttir; gervigrasfótbolti og grasfótbolti. Þetta er alls ekki það sama. Ég er á því að það væri frábært ef einhver lið gætu boðið upp á frábæra grasvelli yfir allt tímabilið."
„Þetta er eitthvað sem við þurfum að fara yfir með bænum og komast að einhverri niðurstöðu hvernig sé best að gera þetta. Ég held að aðalatriðið sé að Hafnarfjörður geti boðið upp á toppklassa völl á Íslandsmóti, sama hvort það sé í júlí eða í október."
Miðað við gögnin hjá Jóhanni Ægi voru mestar líkur á sigri heimaliðs þegar gervigraslið tóku á móti grasliðum.
„Það helst líka í hendur við það að okkur hefur ekki gengið jafnvel og okkur gekk á síðustu tveimur áratugum. Við höfum ekki verið sterkir á útivelli síðastliðin ár, komið tveir mjög langir kaflar þar sem við höfum ekki unnið leik."
Væri möguleiki að vera áfram á náttúrulegu grasi en vera með hann upphitaðan?
„Það er alveg möguleiki, en þú þarft alltaf að taka völlinn upp til að leggja lagnir. Venjulegt gras vex ekki jafnvel og hybrid-grasið. Það er fullt af möguleikum í boði, og þetta snýst líka um að fá flóðlýsingu."
„Fyrsta skrefið er að setjast niður með bæjaryfirvöldum og fara yfir þetta. Við höfum ekki gert það almennilega ennþá, ekki bænum kenna, það hefur bara ekki verið gert," segir Davíð.