Fotbolti.net
06.11.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hurzeler: Eiga að láta sig dreyma um úrslitaleikinn

Hurzeler: Eiga að láta sig dreyma um úrslitaleikinn
Canon

Mynd: EPA

Brighton vann 1-0 sigur á Getafe í Sambandsdeildinni í gær en Malick Yalcouye skoraði eina mark leiksins eftir rúmlega klukkutíma leik.

Brighton hefur farið gríðarlega vel af stað á tímabilinu og er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar. Þá er liðið með sjö stig eftir þrjár umferðir í Sambandsdeildinni.
„Þetta var eins og við bjuggumst við. Leikirnir í Sambandsdeildinni eru öðruvísi. Maður þarf að komast í gegnum lágvörnina og vera þolinmóður. Við áttum ekki okkar besta leik en við héldum hreinu og skoruðum. Við áttum skilið að vinna," sagði Fabian Hurzeler eftir leikinn.

Hann var spurður að möguleikanum að komast í úrslit keppninnar.

„Þeir eiga að láta sig dreyma en við einbeitum okkur að vinnunni og hlutum sem við getum haft stjórn á."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.