Fotbolti.net
05.11.26 - 21:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lögregla skarst í leikinn þegar leikmaður Newcastle sást með boga

Lögregla skarst í leikinn þegar leikmaður Newcastle sást með boga
Canon

Mynd: EPA

Í það minnsta sex lögreglubílar mættu á svæðið þegar Amar Dedic, leikmaður Newcastle, sást með boga og örvar í grennd við Newcastle.
Daily Mail greinir frá því að mektir og ómerktir lögreglubílar hafi verið kallaðir út og lögreglumenn voru vopnaðir.

Hann ásamt félaga sínum voru handteknir og lögregla leitaði í bílnum hans og gerðu boga og örvar upptækt. Dedic var í kjölfarið yfirheyrður og lögreglan staðfesti síðar að talið væri að búnaðurinn hefði verið ætlaður til afþreyingar og að engin ógn stafaði af honum fyrir almenning.

Dedic er 24 ára gamall Bosníumaður sem gekk til liðs við Newcastle frá Benfica fyrir 30 milljónir í sumar. Hann hefur spilað tíu leiki á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.