Fotbolti.net
06.11.26 - 08:50
Elvar Geir Magnússon

Arsenal, Liverpool og Man Utd fylgjast með leikmönnum

Marcus Tavernier.

Marcus Tavernier.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Hér er slúðurpakkinn á hressandi föstudegi. Njótið helgarinnar, þetta er síðasta helgin fyrir landsleikjahlé!
Arsenal og Manchester United fylgjast með miðjumanninum Marcus Tavernier (27) sem leikur með Bournemouth. (Teamtalk)

Arsenal er eitt þeirra félaga sem hafa áhuga á Nicolo Tresoldi (22), sóknarmanni Club Brugge og U21 landsliðsmanni Þýskalands. (Tuttomercato)

Manchester United, Chelsea og Liverpool fylgjast með þýska varnarmanninum Nnamdi Collins (22) sem leikur með Eintracht Frankfurt. Hann getur bæði spilað sem miðvörður og hægri bakvörður. (Fussball News)

Liverpool hefur aukinn áhuga á enska bakverðinum Archie Brown (24) sem leikur með Fenerbahce. (Teamtalk)

Flamengo hefur áhuga á Alisson (34), markverði Liverpool. (Sport Witness)

Newcastle United vill fá enska sóknarmanninn Ivan Toney (30) frá sádi-arabíska félaginu Al-Ahli í janúar. (Football Insider)

Michael Carrick nýtur enn stuðnings meðal stjórnenda Manchester United en viðureignin gegn Aston Villa á sunnudag er talin lykilleikur fyrir hann. (Sky Sports)

Manchester United kannaði hug Didier Deschamps, fyrrum landsliðsþjálfara Frakklands, en hann gaf það svar að hann hafi ekki áhuga á að taka við liðinu. (Mirror)

Eintracht Frankfurt vonast til að fá franska framherjann Arnaud Kalimuendo (24) frá Nottingham Forest aftur til liðs við sig. (L'Equipe)

Enski vængmaðurinn Jamie Gittens (22) hjá Chelsea er einn af þeim leikmönnum sem Roma er að skoða til að styrkja hóp sinn í janúar. (Gazzetta dello Sport)

AC Milan er í viðræðum við franska miðjumanninn Adrien Rabiot (31) um að framlengja samning hans. (Gazzetta dello Sport)

Tottenham heldur réttinum til að jafna tilboð sem gert er í enska framherjann Harry Kane (33) sem hluti af nýjum samningi hans við Bayern München. (Telegraph)
Nicolo Tresoldi.

Nicolo Tresoldi.

Canon

Mynd: EPA

Nnamdi Collins (til vinstri).

Nnamdi Collins (til vinstri).

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.