05.11.26 - 15:48
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
„Auðvelt að draga þá ályktun að Hjörtur sé ekki vinsæll meðal hópsins“

Gekk til liðs við Gautaborg í sumar.

Mynd: Mummi Lú

Arnar vill halda sama ryþma og kemestríu frá síðasta glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fastamaður í vörn Gautaborgar.

Mynd: Guðmundur Svansson

Gekk til liðs við Gautaborg í sumar.

Mynd: Mummi Lú
Hjörtur Hermannsson var ekki valinn í landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar sem var opinberaður í gær og mætir Búlgaríu og Lúxemborg í síðustu tveimur leikjum riðilsins í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Hjörtur var heldur ekki valinn í síðasta landsliðshóp. Arnar sagði það vera vegna meiðsla en Hjörtur spilaði alla leiki Gautaborgar í aðdraganda síðustu landsleikja. Hann tók svo út leikbann í fyrsta leik eftir landsleikjatörnina og hefur síðan þá spilað alla leiki liðsins.

TENGT EFNI
Arnar um Hjört: Ryþmi og kemestría sem ég vildi halda áfram
Daníel Leó Grétarsson var valinn í hópinn en hann hefur verið í leyfi frá AGF vegna persónulegra ástæðna og er óvíst hvort hann verði með í landsleikjunum.
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var rætt um hvers vegna Hjörtur væri ekki valinn og hvort hann gæti komið inn í hópinn í stað Daníels skyldi hann þurfa að draga sig úr hópnum.
„„Það er mjög auðvelt að draga þá ályktun að hann sé ekkert gríðarlega vinsæll meðal landsliðsmannanna og að það sé ekkert hægt að hafa hann í hóp,“ sagði Tómas Þór Þórðarson en Arnar ræddi um kemestríu í hópnum á blaðamannafundi í gær þegar hann var spurður út í Hjört.
„Áhugavert að heyra Arnar tala um að halda sömu kemestríu sem var í hópnum í síðasta glugga en á sama tíma voru leikmenn sem fóru á pókerklúbb á milli leikja,“ bætti Kári Snorrason við.
„Gæinn er að spila alla leiki sem miðvörður með Gautaborg sem fær í mesta lagi á sig eitt mark í leik. Í dag ætti þetta að vera miklu meira en nóg til að komast í vörnina hjá íslenska landsliðinu. Sama hvað hann gerir þá klukkar hann ekki hópinn,“ sagði Tómas jafnframt.
Hjörtur hefur spilað 32 landsleiki og skorað eitt mark. Hann var síðast valinn í hópinn í byrjun sumars þegar liðið mætti Japan og Argentínu í æfingaleikjum og kom hann við sögu í báðum leikjum.