Fotbolti.net
06.11.26 - 09:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Eins og mér líður núna þá er ég hættur"

Birkir Már og yngri bróðir hans, Aron Elí, eftir að Afturelding vann Lengjudeildina.

Birkir Már og yngri bróðir hans, Aron Elí, eftir að Afturelding vann Lengjudeildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Birkir Már Sævarsson tók slaginn með Aftureldingu á liðnu tímabili og hjálpaði liðinu að vinna Lengjudeildina og komast í bikarúrslitaleikinn.

Birkir, sem verður 42 ára í næstu viku, segir við Fótbolta.net að hann sé að öllum líkindum hættur.

Hann hefur átt farsælan feril, er uppalinn hjá Val, varð Íslandsmeistari með liðinu fyrir tæpum 20 árum og lék svo í atvinnumennsku með Brann í Noregi og Hammarby í Svíþjóð.

Hann sneri svo aftur heim til Íslands árið 2018 og vann tvo Íslandsmeistaratitla til viðbótar með Val.

Hann var byrjunarliðsmaður þegar Ísland fór á EM 2016 og HM 2018. Alls lék hann 103 landsleiki.
Birkir Már fór aftur í tímann: Gæsahúðar móment
TENGT EFNI

Birkir Már fór aftur í tímann: Gæsahúðar móment

„Eins og mér líður núna þá er ég hættur," segir Birkir við Fótbolta.net.

„Ég verð í mesta lagi til taks fyrir KH (venslalið Vals) ef að þeir vilja hafa mig."

„En ég mun sennilega ekki fara á fótboltaæfingu fyrr en fer að vora, í fyrsta lagi,"
segir Vindurinn.
„Eins og mér líður núna þá er ég hættur"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.