Fotbolti.net
07.03.21 - 18:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Tottenham og Crystal Palace: Lucas inn fyrir Alli

Moura byrjar hjá Spurs.

Moura byrjar hjá Spurs.

Canon

Mynd: Getty Images

Lokaleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er Lundúnaslagur á milli Tottenham og Crystal Palace.

Fyrir leikinn er Tottenham í áttunda sæti og Palace í 13. sæti. Tottenham kemur inn í þennan leik með þrjá sigurleiki í röð á bakinu en Palace gerði jafntefli við Manchester United í síðustu viku.
Jose Mourinho gerir þrjár breytingar frá nauma sigrinum gegn Fulham í síðustu viku. Sergio Reguilon, Harry Winks og Lucas Moura koma inn í byrjunarliðið fyrir Ben Davies, Tanguy Ndombele og Dele Alli.

Hjá Palace er Wilfried Zaha mættur á bekkinn og hann gæti því komið við sögu í dag eftir að hafa misst af síðustu leikjum vegna meiðsla.

Byrjunarlið Tottenham: Lloris, Doherty, Alderweireld, Sanchez, Reguilon, Hojbjerg, Winks, Moura, Bale, Son, Kane.
(Varamenn: Hart, Lamela, Dier, Sissoko, Alli, Bergwijn, Ndombele, Davies, Vinicius)

Byrjunarlið Crystal Palace: Guaita, Ward, Cahill, Kouyate, Van Aanholt, Milivojevic, Riedewald, Townsend, Eze, Benteke, Ayew.
(Varamenn: Butland, Dann, Zaha, Mateta, Schlupp, Wickham, Batshuayi, Kelly, Hannam)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.