Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 07. mars 2021 09:00
Victor Pálsson
Haaland ekki alvarlega meiddur
Mynd: Getty Images
Erling Haaland, leikmaður Dortmund, er ekki alvarlega meiddur eftir leik við Bayern Munchen í gær.

Edin Terzic, stjóri liðsins, staðfesti það eftir viðureignina en Haaland fór af velli í 4-2 tapi í risaslag.

Norðmaðurinn var bestur í liði gestanna en hann skoraði bæði mörk liðsins og fór svo af velli eftir um klukkutíma.

Haaland meiddist eftir viðskipti við Jerome Boateng en engar líkur eru á að hann verði lengi frá keppni.

Terzic segir að Haaland hafi verið í lagi í leikslok og ætti að vera klár fyrir næsta leik liðsins.

Haaland var í gær að skora sitt 19. mark í deildinni á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner