Þór/KA 0 - 2 Breiðablik
0-1 Agla María Albertsdóttir ('12)
0-2 Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('66)
0-1 Agla María Albertsdóttir ('12)
0-2 Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('66)
Íslandsmeistarar Breiðablik gerðu góða ferð norður á Akureyri þennan sunnudaginn.
Blikar sóttu Þór/KA heim í A-deild Lengjubikars kvenna en fyrir leikinn voru Blikar með fjögur stig og Þór/KA með fullt hús stiga eftir tvo leiki.
Það var Agla María Albertsdóttir sem kom Blikum yfir á tólftu mínútu leiksins og var staðan 0-1 í hálfleik. Í seinni hálfleiknum komust gestirnir í 0-2 þegar varamaðurinn Bergþóra Sól Ásmundsdóttir skoraði.
Lokatölur 0-2 og flottur sigur Blika staðreynd. Þær fara núna upp að hlið Fylkis á toppi riðilsins með sjö stig. Þór/KA er í þriðja sætinu.
Athugasemdir