Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. mars 2021 07:00
Victor Pálsson
Musiala krotaði undir til 2026
Mynd: Getty Images
Jamal Musiala, efnilegur leikmaður Bayern Munchen, hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning.

Musiala er nýjasta vonarstjarna Bayern en hann varð 18 ára gamall í síðustu viku en er þrátt fyrir það fastur hlekkur í leikmannahóp liðsins.

Musiala hefur spilað 27 leiki fyrir Bayern á tímabilinu og hefur í þeim skorað fjögur mörk. Hann gerði fimm ára samning til ársins 2026.

Um er að ræða fyrrum ungling Chelsea en hann lék með akademíu enska liðsins í átta ár og kom til Bayern árið 2019.

Musiala ákvað nýlega að spila fyrir hönd Þýskalands frekar en Englands en hann fæddist í Stuttgart í Þýskalandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner