Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. mars 2021 14:10
Aksentije Milisic
Segir að Liverpool eigi að selja Salah vilji hann fara
Mynd: Getty Images
Robbie Fowler, fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir að félagið eigi að selja Mohamed Salah, vilji leikmaðurinn fara.

Liverpool gæti selt hann fyrir mjög háa upphæð og þann pening gæti Jurgen Klopp, stjóri liðsins, notað til að byggja upp nýtt lið.

Salah hefur verið algjör lykilmaður hjá Liverpool síðan hann kom til liðsins fyrir fjórum árum. Á þeim tíma hefur hann unnið ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina. Hann er nú mikið orðaður við Real Madrid og Barcelona.

„Ég er ekki að skjóta á Salah. Ég elska þennan mann. En ég trúi því að félagsskipti nú til dags taka mikið mið að því hvað leikmaðurinn vilji," sagði Fowler.

„Ef hann vill fara, þá verður hann að fara, við verðum að taka því. Ég trúi því ef leikmenn eru ósáttir hjá liðum sínum, þá eiga þeir að vera seldir."

„Klopp hefur sagt það sama. Hann vill ekki vera með neinn leikmann hjá félaginu sem vill ekki vera hér. Hann seldi Coutinho því hugarfar hans var ekki gott."

Fowler segir að Liverpool ætti að selja Salah fyrir eins háa upphæð og hægt er, svo að Jurgen Klopp geti byrjað að endurbyggja liðið hægt og rólega.
Athugasemdir
banner
banner
banner