Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var stoltur af ungu strákunum í 2-1 bikarsigrinum á Mansfield Town í dag, en hann var ánægður að geta gefið þeim tækifærið við svona stórt tilefni.
Arsenal var í vandræðum með Mansfield sem leikur í C-deildinni á Englandi.
Noni Madueke kom liðinu yfir en Mansfield jafnaði eftir varnarmistök snemma í síðari áður en Eberechi Eze skaut Arsenal áfram.
„Þetta var alvöru bikarleikur. Ég verð að hrósa Mansfield, leikvanginum og andrúmsloftinu. Stuðningsmenn sköpuðu góðlátlega stríðni. Þetta var flott frammistaða hjá þeim sem veittu okkur mikla mótspyrnu og gerðu okkur erfitt fyrir.“
„Við verðum að vera grimmari fyrir framan markið. Við fengum fjögur eða fimm dauðafæri sem við klúðruðum og þá gefur þú andstæðingnum von. Við gerðum líka mistök í markinu,“ sagði Arteta.
Marli Salmon og Max Dowman byrjuðu báðir hjá Arsenal, en báðir eru 16 ára gamli. Arteta segir það sögulegt sem er hárrétt en þetta er í fyrsta sinn sem enskt úrvalsdeildarlið er með tvo sextán ára í byrjunarliði.
„En við vorum með tvo 16 ára í byrjunarliðinu sem ég held að hafi aldrei áður gerst.“
„Öllum líður eins og þeir séu með. Við höfum þessa þrá að með hverjum leiknum sem við spilum færumst við nær því sem við viljum afreka,“ sagði Arteta.
Athugasemdir


