Arsenal vann Mansfield Town 2-1 og komst í 8-liða úrslit enska bikarsins, en það var leikmaður C-deildarliðsins sem var valinn maðiur leiksins af Sky Sports.
Mansfield veitti ungu liði Arsenal alvöru leik og var Jamaíkumaðurinn Jonathan Russell þeirra besti maður með átta í einkunn. Liam Roberts, markvörður liðsins, spilaði einnig stóra rullu og fékk sömu einkunn.
Hjá Arsenal voru þeir Noni Madueke og Max Dowman bestir með átta. Dowman, sem er aðeins 16 ára gamall, er yngsti leikmaður til þess að spila fyrir Arsenal í bikarnum og þakkaði fyrir sig með góðri frammistöðu.
Hinn ungi og efnilegi Marli Salmon, sem var að byrja sinn fyrsta leik með Arsenal, var í smá brasi og fékk aðeins 4 í einkunn en eina mark Mansfield kom eftir mistök Marli.
Mansfield: Roberts (8), Knoyle (7), Oshilaja (7), Blake-Tracy (7), Akins (7), Russell (8), Reed (7), Abbott (6), McLaughlin (7), Roberts (6), Oates (7).
Varamenn: Evans (8), Lewis (6).
Arsenal: Kepa (6), Salmon (4), Mosquera (5), Calafiori (5), Madueke (8), Norgaard (6), Trossard (5), Martinelli (6), Dowman (8), Havertz (6), Jesus (6).
Varamenn: Hincapie (6), Timber (6), Eze (7), Dixion (6), Saka (6).
???? A performance, and FA Cup journey, to be proud of
— Mansfield Town FC (@mansfieldtownfc) March 7, 2026
Thank you for your support this afternoon ???? pic.twitter.com/oR5jcCYImp
Athugasemdir

