Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 23:25
Ívan Guðjón Baldursson
Rúnar Alex spilaði óvænt: Ég var klár í slaginn
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Rúnar Alex Rúnarsson var á milli stanga FC Kaupmannahafnar sem lagði Viborg að velli í undanúrslitum danska bikarsins í dag.

Rúnar Alex fyllti í skarðið fyrir Dominik Kotarski sem var fjarverandi til að vera viðstaddur fæðingu frumburðarins.

Rúnar hefur verið varamarkvörður FCK frá félagaskiptum sínum frá Arsenal fyrir rétt tæpum tveimur árum síðan, en þetta er aðeins þriðji keppnisleikurinn sem hann spilar fyrir danska stórveldið.

Rúnar stóð sig vel í sigrinum í dag og varði fimm af sex marktilraunum Viborg sem rötuðu á rammann. Eina markið sem andstæðingarnir skoruðu var draumamark utan vítateigs.

„Það mikilvægasta er að við komumst áfram í næstu umferð, allt annað er bónus. Ég er vanalega stressaður fyrir leiki en ég var það ekki í dag, mér leið vel. Ég var tilbúinn í þetta, þetta er ekki fyrsti keppnisleikurinn sem ég spila þó það sé liðinn langur tími síðan síðast," sagði Rúnar að leikslokum.

„Það var 50/50 hvort ég yrði í markinu eða ekki í þessum leik. Ég hef vitað í langan tíma að ég gæti spilað leik á þessum kafla tímabilsins og var því klár í slaginn. Við erum ánægðir með að fara í úrslitaleikinn."

Jacob Neestrup þjálfari svaraði spurningum um Rúnar fyrir upphafsflautið og sagðist ekki hafa neinar áhyggjur þó það geti verið erfitt að skipta um markvörð fyrir undanúrslitaleik.

„Alex kemur inn í liðið með yfirvegun. Hann er góður með fótunum, hann getur gefið góðar stuttar og langar sendingar sem gætu reynst mikilvægar fyrir okkur í þessum leik. Hann er reynslumikill markvörður og veit nákvæmlega hvað hann þarf að gera."

   07.03.2026 18:43
Hilmir Rafn skoraði í bikarnum og Rúnar Alex öflugur

Athugasemdir
banner