Fotbolti.net
07.04.15 - 16:11
Magnús Már Einarsson

Annar Grænhöfðingi í Selfoss (Staðfest)

Elton Barros mun leika með landa sínum frá Grænhöfðaeyjum á Selfossi í sumar.

Elton Barros mun leika með landa sínum frá Grænhöfðaeyjum á Selfossi í sumar.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Selfyssingar hafa samið við Ivanirson Silva Oliveira frá Grænhöfðaeyjum.
Framherjinn Elton Barros kom frá Grænhöfðaeyjum til Selfyssinga í fyrra og hann verður aftur með liðinu í ár.

Olivieira er kallaður Maniche hann hefur æft með Selfyssingum að undanförnu.

,,Hann er mjög lofandi leikmaður. Hann kemur mjög vel út á æfingum og er virkilega spennandi,\" sagði Sævar Þór Gíslason í stjórn knattspyrnudeildar Selfoss í samtali við Fótbolta.net á dögunum.

Maniche er fjölhæfur leikmaður, sem getur leikið bæði á miðju og kanti. Að sögn Sævars þykir hann minna á Babacarr Sarr sem lék vel á miðjunni hjá Selfyssingum 2011 og 2012.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.