Fotbolti.net
07.04.15 - 14:57
Elvar Geir Magnússon

Archange Nkumu til KA (Staðfest)

Archie og Bjarni Jóhannsson þjálfari.

Archie og Bjarni Jóhannsson þjálfari.

Canon

Mynd: Heimasíða KA

KA hefur náð samkomulagi við Archange Nkumu um að leika með félaginu næstu tvö árin en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
„Archie, eins og hann er alltaf kallaður, hefur verið við æfingar hjá KA undanfarin einn og hálfan mánuð,\" segir á heimasíðunni.

Um er að ræða 21 árs gamlan miðjumann sem getur einnig brugðið sér í stöðu miðvarðar. Archie kom til KA í febrúar og hefur verið á reynslu síðan þá. Hann hefur leikið alla leikina með félaginu í Lengjubikarnum og þótt standa sig vel.

KA setur stefnuna á að komast upp í Pepsi-deildina en fyrir hafði liðið fengið Elfar Árna Aðalsteinsson frá Breiðabliki, Halldór Hermann Jónsson frá Val, Hilmar Trausta Arnarsson frá Haukum og Juraj Grizelj frá Grindavík.

Farnir frá liðinu frá síðasta tímabili: Arsenij Buinickij, Edin Beslija, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Jón Heiðar Magnússon, Karstern Vien Smith, Kristján Freyr Óðinsson, Stefán Þór Pálsson og Viktor Örn Guðmundsson.

Heimild: KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.