Fotbolti.net
07.04.20 - 12:06
Magnús Már Einarsson

Sér ekki annað en að Liverpool verði meistari

Aleksander Ceferin.

Aleksander Ceferin.

Canon

Mynd: Getty Images

Aleksander Ceferin, forseti UEFA, segir að það sé ekki möguleiki á að Liverpool verði ekki enskur meistari á þessu tímabili.

Óvíst er hvort og hvenær tímabilið í Englandi heldur áfram vegna kórónuveirunnar en Liverpool er með 25 stiga forskot þegar níu umferðir eru eftir.
„Ég sé engan möguleika á að Liverpool fái ekki titilinn. Ef að deildin heldur áfram þá vinna þeir þetta nánast pottþétt. Þetta er ekki tölfræðilega öruggt en þetta er nánast klárt," sagði Ceferin í viðtali í heimalandi sínu Slóveníu.

„Ef að það verður ekki spilað áfram þá yrði nauðsynlegt að fá úrslit á einn eða annan hátt og ákveða hvernig úrslit í deildinni verða. Ég sé ekki annað í kortunum en að þetta verði Liverpool."

„Ég skil að stuðningsmenn þeirra verða vonsviknir ef þetta gerist á tómum leikvelli eða utan vallar en ég tel að þeir vinni titilinn á einn eða annan hátt."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.