Fotbolti.net
29.11.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þýskaland: Dortmund tapaði - Ótrúleg toppbarátta

Þýskaland: Dortmund tapaði - Ótrúleg toppbarátta
Canon

Mynd: EPA

Það er mögnuð spenna í toppbaráttunni í þýsku deildinni en topplið Dortmund tapaði gegn Leverkusen í kvöld.

Felix Nmecha kom Dortmund yfir snemma leiks en Patrick Schick jafnaði metin í seinni hálfleik. Það var síðan Equi Fernandez sem tryggði Leverkusen sigurinn.
Dortmund er á toppnum með 24 stig, stigi á undan Bayern og aðeins tveimur stigum á undan Leverkusen sem er í 5. sæti.

Freiburg og Leipzig gerðu markalaust jafntefli en Freiburg er í 3. sæti með 23 stig og Leipzig í 4. sæti með 22 stig eins og Leverkusen.

Þá vann Augsburg öruggan sigur á tíu leikmönnum Hoffenheim. Augsburg er í 8. sæti með 15 stig en Hoffenheim er í 15. sæti með 12 stig.

Dortmund 1 - 2 Leverkusen
1-0 Felix Nmecha ('8 )
1-1 Patrik Schick ('69 )
1-2 Ezequiel Fernandez ('80 )

Freiburg 2 - 2 RB Leipzig
1-0 Igor Matanovic ('11 )
2-0 Maximilian Eggestein ('43 , víti)
2-1 Christopher Nkunku ('53 , víti)
2-2 Christoph Baumgartner ('90 )

Hoffenheim 0 - 4 Augsburg
0-1 Yannik Keitel ('12 )
0-2 Fabian Rieder ('23 )
0-3 Marius Wolf ('34 )
0-4 Juma Bah ('45 )
Rautt spjald: Mats Rots, Hoffenheim ('20)

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Dortmund11+1025
2Bayern11+2023
3Freiburg11+1123
4RB Leipzig11+1822
5Leverkusen11+720
6Werder11+619
7Frankfurt11-416
8Augsburg11+615
9Stuttgart11014
10Köln11+113
11Paderborn11013
12Mainz11-213
13Elversberg11-713
14Hamburger11-1413
15Hoffenheim11-612
16Schalke 0411-137
17Union Berlin11-197
18Gladbach11-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.