Fotbolti.net
29.11.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Daníel Leó innsiglaði sigurinn - Kristian hafði betur gegn Willum

Daníel Leó Grétarsson

Daníel Leó Grétarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Leó Grétarsson var á skotskónum þegar hann innsiglaði 3-0 sigur AGF gegn Silkeborg í dönsku deildinni. Hann spilaði allan leikinn en Mikael Neville Anderson var ónotaður varamaður. Tómas Óli Kristjánsson var ekki í hópnum.

AGF er í 6. sæti með 21 stig eftir 16 umferðir.
Kristian Nökkvi Hlynsson spilaði klukkkutíma í 1-0 sigri Twente gegn NEC Nijmegen í hollensku deildinni. Willum Þór Willumsson spilaði 77 mínútur í liði NEC. Twente er í 2. sæti með 30 stig, tveimur stigum á eftir toppliði PSV. NEC er í 14. sæti með 14 stig.

Amin Cosic var ónotaður varamaður þegar Viking valtaði yfir Valerenga 7-2 í norsku deildinni. Kollbeinn Finnsson er á meiðslalistanum hjá Valerenga.

Sævar Atli Magnússon spilaði 61 mínútu og Kristall Máni 77 mínútur í 2-0 sigri Brann á Kristiansund. Júlíus Mar Júlíusson kom inn á 73. mínútu hjá Kristiansund.

Viking er í 2. sæti með 65 stig, þremur stigum á eftir Bodö/Glimt þegar sex stig eru eftir í pottinum. Brann er í 7. sæti með 39 stig og Kristiansund er í 14. sæti með 27 stig. 14. sæti er umspilssæti um áframhaldandi veru í deildinni en liðið er tveimur stigum frá falli og þremur stigum frá öruggu sæti.

Aron Einar Gunnarsson spilaði allan leikinn í 2-2 jafnteflli Qatar SC gegn Al Shahaniya í deildinni í Katar. Qatar er í næst neðsta sæti með 10 stig eftir 11 umferðir, liðið er stigi á eftir Al Shahaniya sem er í sætinu fyrir ofan.

Óttar Magnús Karlsson kom inn á undir lokin þegar Renate vann 1-0 sigur á Folgore Caratese í ítölsku C-deildinni. Renate er í 16. sæti með 15 stig eftir 16 umferðir í A riðli.
Kristian Nökkvi Hlynsson

Kristian Nökkvi Hlynsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.