Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 07. apríl 2021 16:30
Magnús Már Einarsson
Jóhann Þór í Víði (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víðir Garði í 3. deild hefur fengið sóknarmanninn Jóhann Þór Arnarsson á láni frá Keflavík.

„Jóhann Þór kom til Keflavíkur 2019 og hefur spilað 15 leiki og skorað i þeim 2 mörk. Jóhann er aðeins 19 ára gamall og fer til Víðis til að fá leikmínútur og reynslu," segir á Facebook síðu Keflavíkur.

„Hjá Víði mun Jóhann hitta Þröst Inga sem er einnig á láni hjá Víði. Við viljum óska þeim félögum og Keflvíkingum góðs gengis með Víði."

Víðir Garði féll úr 2. deildinni í fyrra en liðið á að hefja leik í 3. deildinni gegn Dalvík/Reyni þann 8. maí næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner