Fotbolti.net
07.05.15 - 10:53
Elvar Geir Magnússon

Thomas G. Christensen í Val (Staðfest)

Segir Val ætla að vera í toppbaráttunni

Thomas G. Christensen til hægri.

Thomas G. Christensen til hægri.

Canon

Mynd: Getty Images

Valur hefur gert samning við danska varnarmanninn Thomas Guldborg Christensen en þetta kemur fram á Bold.dk.
Thomas er 31 árs gamall miðvörður en hann losaði sig undan samningi hjá Hammarby í Svíþjóð til að ganga í raðir Vals.

„Ég tók þessa ákvörðun þegar við spiluðum við AIK fyrir framan 41 þúsund áhorfendur fyrir nokkrum dögum,\" sagði Thomas.

„Ég sat allan tímann á bekknum og hugsaði um hvað ég væri gjarnan til í að vera inni á vellinum.\"

„Þess vegna ákvað ég að taka tilboðinu frá Val en þeir ætla að vera í toppbaráttunni á Íslandi.\"


Thomas spilaði áður með HB Køge, Vejle, Viborg og AB í heimalandi sínu Danmörku.

Valur tapaði 3-0 gegn Leikni í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar en þar voru Orri Sigurður Ómarsson og Þórður Steinar Hreiðarsson í hjarta varnarinnar. Félagið hefur verið í leit að varnarmanni.

Næsti leikur Vals er gegn Víkingi á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.