Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 07. maí 2021 07:30
Victor Pálsson
Rudiger ræðir við Chelsea eftir tímabilið
Antonio Rudiger, leikmaður Chelsea, mun ræða við félagið um framtíðina eftir tímabilið.

Sky Sports greinir frá þessu en Rudiger hefur nýlega komið sterkur inn í byrjunarlið Thomas Tuchel.

Þjóðverjinn átti ekki fast sæti í liðinu undir stjórn Frank Lampard og var nálægt því að yfirgefa liðið í janúar.

Samningur Rudiger rennur út árið 2022 og hafa lið á borð við PSG og AC Milan sýnt honum áhuga.

Eftir að hafa fengið að spila síðustu mánuði eru líkur á að varnarmaðurinn framlengi.

Chelsea er komið í bæði úrslit Meistaradeildarinnar og úrslit bikarsins.

Athugasemdir
banner