Fotbolti.net
07.05.26 - 22:22
Brynjar Ingi Erluson

Einkunnir úr Evrópu: Þrír í sérklassa hjá Villa - Sarr bestur á Selhurst Park

Victor Lindelöf var magnaður hjá Villa

Victor Lindelöf var magnaður hjá Villa

Canon

Mynd: EPA

Þrír leikmenn Aston Villa voru stórkostlegir í 4-0 stórsigrinum á Nottingham Forest í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.
Evrópudeildin: Aston Villa í úrslit eftir stórkostlega frammistöðu - Mæta Freiburg
TENGT EFNI

Evrópudeildin: Aston Villa í úrslit eftir stórkostlega frammistöðu - Mæta Freiburg

Sænski varnarmaðurinn Victor Lindelöf var í nýju hlutverki gegn Forest, en hann var settur á miðsvæðið þar sem hann skilaði inn ótrúlegri frammistöðu.

Sky Sports gaf honum 9 fyrir frammistöðuna, en þeir Emi Buendía og Ollie Watkins fá sömu einkunn. Buendía var valinn bestur af Sky.

Flestir hjá Forest áttu ömurlegt kvöld, en þeir Jair Cunha, Nikola Milenkovic og Igor Jesus voru sérstaklega slakir með 4 í einkunn.

Aston Villa: Martinez (7), Cash (7), Konsa (8), Torres (8), Digne (7), Lindelof (9), Tielemans (7), McGinn (8), Buendia (9), Rogers (8), Watkins (9).
Varamenn: Bogarde (6).

Nottingham Forest: Ortega (6), Cunha (4), Milenkovic (4), Morato (5), Williams (6), Hutchinson (6), Dominguez (5), Anderson (6), McAtee (5), Jesus (4), Wood (5).
Varamenn: Yates (5), Lucca (6), Bakwa (6).

Ismaila Sarr var maður leiksins hjá Palace sem vann Shakhtar, 2-1, í Sambandsdeildinni. Félagið mun leika til úrslita í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins og það í fyrsta Evrópuævintýrinu.

Einkunnir Crystal Palace gegn Shakhtar: Henderson (7), Munoz (7), Richards (6), Lacroix (6), Canvot (7), Mitchell (7), Wharton (6), Kamada (7), Pino (7), Sarr (8), Mateta (7)
Varamenn: Johnson (6), Strand Larsen (6).
Ismaila Sarr var besti maður Palace

Ismaila Sarr var besti maður Palace

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.