Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 14:14
Elvar Geir Magnússon
Valverde endaði á sjúkrahúsi eftir slagsmál við Tchouameni
Federico Valverde.
Federico Valverde.
Mynd: EPA
Fyrr í dag fjölluðum við um það ófremdarástand sem hefur ríkt hjá Real Madrid en rifrildi og slagsmál hafa verið daglegir viðburðir á æfingasvæðinu að undanförnu.

Greint var frá því að til handalögmála hafi komið milli tveggja af stjörnum liðsins; Aurelien Tchouameni og Fede Valverde.

Marca hefur nú greint frá því að slagsmálin hafi endað á mun verri hátt en fyrst var talið og Valverde hafi farið á sjúkrahús.

Hnefarnir voru látnir tala og var Valverde blóðugur eftir átökin, sem áttu sér stað í búningsklefanum eftir æfingu í gær.

Stjórinn Alvaro Arbeloa boðaði til neyðarfundar eftir slagsmálin til að reyna að róa andrúmsloftið innan hópsins. Arbeloa virðist hafa litla stjórn á ástandinu en spænskir fjölmiðlar segja að sex leikmenn liðsins tali ekki við hann.


Slapp
banner
banner