Þetta hefur verið stormasamt tímabil hjá Real Madrid og spænskir fjölmiðlar eru þessa dagana uppfullir af fréttum af dramatík, handalögmálum og rifrildum innan hópsins hjá konunglega stórliðinu.
Það eru nokkrir dagar í El Clasico slaginn gegn Barcelona en neikvæðar fréttir berast frá Real Madrid á færibandi.
Það eru nokkrir dagar í El Clasico slaginn gegn Barcelona en neikvæðar fréttir berast frá Real Madrid á færibandi.
Bakvörðurinn Alvaro Carreras hefur staðfest að liðsfélagi sinn Antonio Rudiger hafi slegið sig í deilum þeirra á milli á æfingasvæðinu og í gær kom svo til handalögmála milli Aurelien Tchouameni og Fede Valverde.
Þá greinir Marca frá því að sex ónafngreindir leikmenn liðsins tali ekki lengur við stjórann Alvaro Arbeloa. Það er þó hægt að leiða líkur að því hvaða leikmenn um er rætt.
Arbelo hefur lent upp á kant við Dani Carvajal, Raul Asencio og Dani Ceballos en sá síðastnefndi er kominn í frystikistuna og spilar ekki meira á tímabilinu. Ceballos og Arbeloa rifust heiftarlega á skrifstofu Arbeloa í síðustu viku.
Ofan á þetta eru einhverjir leikmenn sem tala ekki við hvorn annan og mikið hefur gustað um stórstjörnuna Kylian Mbappe. Hann hefur hlotið harða gagnrýni fyrir að hafa farið í frí með kærustu sinni meðan hann var að jafna sig af meiðslum. Þau tvö voru mynduð njóta lífsins á snekkju í Sardiníu á meðan liðsfélagar hans voru að búa sig undir leikinn gegn Börsungum.
Mbappe er sagður vera með stjörnustæla í klefanum hjá Madrídingum og hann lenti í rifrildi við einn af aðstoðarmönnum Arbeloa.
Það stefnir í að Real Madrid fari titlalaust í gegnum tímabilið en liðinu hefur mistekist að vinna stóran titil síðan Mbappe kom til félagsins. Margir stuðningsmenn liðsins eru ósáttir við hugarfar hans og yfir 30 milljónir hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem kallað er eftir því að hann yfirgefi félagið.
#Lomáscomentado | Bronca brutal en el entrenamiento del Madrid: Valverde y Tchouameni casi llegan a las manos https://t.co/Kn9D24YHOg
— MARCA (@marca) May 6, 2026



