Það fara fram tveir leikir í Seríu A deildinni á Ítalíu í dag en efstu tvö liðin eiga bæði leik.
Lazio, sem er 7 stigum frá Juventus sem er á toppi deildarinnar, heimsækir fallbaráttulið Lecce. Lecce er tveimur stigum frá öruggu sæti.
Klukkan 19.45 er síðan stórleikur þegar Juventus heimsækir lið AC Milan. AC er í baráttu um sæti í evrópukeppni en liðið vann stórsigur á Lazio í síðustu umferð.
Leikur AC Milan og Juventus verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Leikir dagsins:
17:30 Lecce - Lazio
19:45 Milan - Juventus (Stöð 2 sport 2)
Athugasemdir