Dröfn Einarsdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu er Keflavík rúllaði yfir Fjölni í Lengjudeild kvenna í dag.
Natasha Moraa Anasi gerði fyrsta mark leiksins á tuttugustu mínútu og bætti Dröfn tveimur við fyrir leikhlé. Fjölnisstelpur voru sprækar en augljós gæðamunur á liðunum og sigur Keflvíkinga verðskuldaður.
ÍA skoraði þá fjögur á móti Völsungi á meðan Grótta lagði Víking R. að velli.
Nýliðar Gróttu verðskulduðu sigurinn og eru með átta stig eftir fjórar umferðir. Leikmenn Víkings voru ekki uppá sitt besta en komust þó nálægt því að snúa leiknum sér í hag í stöðunni 1-1.
Að lokum gerði Hugrún Pálsdóttir eina mark leiksins er Tindastóll sigraði Augnablik.
Hugrún skoraði eftir laglegt einstaklingsframtak og gerðu Sauðkræklingar vel að halda hreinu gegn erfiðum andstæðingum.
Keflavík er á toppi deildarinnar ásamt Tindastóli, með tíu stig eftir fjórar umferðir. Grótta deilir þriðja sætinu með Haukum.
Fjölnir 0 - 4 Keflavík
0-1 Natasha Moraa Anasi ('20)
0-2 Dröfn Einarsdóttir ('38)
0-3 Dröfn Einarsdóttir ('42)
0-4 Dröfn Einarsdóttir ('65)
ÍA 4 - 0 Völsungur
1-0 Jaclyn Ashley Poucel ('36)
2-0 Erla Karitas Jóhannesdóttir ('38)
3-0 Unnur Ýr Haraldsdóttir ('41)
4-0 Fríða Halldórsdóttir ('70)
Tindastóll 1 - 0 Augnablik
1-0 Hugrún Pálsdóttir ('21)
Víkingur R. 1 - 3 Grótta
0-1 Helga Rakel Fjalarsdóttir ('13)
0-2 María Lovísa Jónasdóttir ('44)
1-2 Stefanía Ásta Tryggvadóttir ('63)
1-3 Emelía Óskarsdóttir ('80)
Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Athugasemdir