Fotbolti.net
07.07.20 - 07:30
Aksentije Milisic
Ítalski boltinn

Sarri: Higuain eini sem ég rífst við

Sarri: Higuain eini sem ég rífst við
Canon

Mynd: Getty Images

Maurizio Sarri, stjóri Juventus, hefur tjáð sig um þá orðróma sem koma reglulega upp varðandi það að hann sé að lenda í rifrildum við leikmenn sína.
Sarri segir að það sé ekki rétt að hann sé að rífast við leikmenn sína og segir hann frá því að hann rífist bara við einn leikmann liðsins.

„Ég er alltaf að lesa um það að ég sé að rífast við alla leikmenn liðsins. Sá eini sem ég rífst við er Gonzalo Higuain," sagði Sarri.

„Stundum þarf maður að vera aggressívur við Higuain til þess að ná það besta úr honum. Ég veit ekki af hverju það er, en það er þannig."

Juventus mætir AC Milan í ítölsku deildinni í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.