Það var mikið fjör í leik Crystal Palace og Chelsea í dag þar sem fimm mörk voru skoruð. Watford lagði þá Norwich að velli og má sjá það helsta úr leikjunum með að smella á hlekkina hér að neðan.
Chelsea stóð uppi sem sigurvegari gegn Palace, 2-3, en Christian Benteke fékk tækifæri til að jafna leikinn á 95. mínútu. Hann var einn og óvaldaður inní vítateig en Kurt Zouma sagði nei og straujaði boltann í hornspyrnu. Sjá hér .
Wilfried Zaha skoraði fyrsta mark Palace í leiknum af 25 metra færi og var það vægast sagt magnað. Sjá hér
Danny Welbeck gerði þá mark með bakfallsspyrnu í fallbaráttuslag gegn botnliði Norwich. Markið var einkar laglegt og kom eftir skyndisókn. Sjá hér
Athugasemdir