Höddi: Hrós á bæjaryfirvöld Hveragerðis fyrir geggjaða aðstöðu
Auglýsing

Hörður var sáttur eftir sigur í Hveragerði

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Hamar tóku á móti Dalvík/Reyni í Hveragerði í Fótbolta.net bikarnum.
Leiknum lauk með 2-1 sigri gestanna í erfiðum leik.

Lestu um leikinn: Hamar 1 - 2 Dalvík/Reynir
„Bara fínn sigur. Hamarsliðið er bara mjög gott eins og það sést bara á úrslitunum hjá þeim í sumar í fjórðu deildinni, þannig að þetta var alltaf að fara að vera svolítið test fyrir okkur. Mér fannst við bara gera vel og gera nóg. Við hefðum átt að ganga frá leiknum þrjú til fjögur núll og aldrei vera með einhverja stöðu þar. Þeir fá horn þarna í restina bara sem að allt gat gerst, en við kláruðum þetta og um það snýst bikarinn"
Leikurinn var færður af Grýluvelli yfir á gervigrasið við hlið hans þar sem dómararnir töldu Grýluvöllinn vera hættulegan vegna mikillar bleytu. Það rigndi mikið og var hvasst, sem hafði töluverð áhrif á leikinn og setti svip sinn á gang hans.
„Nei, þú veist, þessi bikarkeppni er þannig að þeir höfðu engu að tapa, við höfðum öllu að tapa í rauninni að spila við lið tveimur deildum neðar en við en þeir eru í toppbaráttu, bara fullir af sjálfstrausti. Eina svekkelsið sem ég hef í rauninni í rigningunni er að fá ekki að spila á grasinu hérna á Grýluvelli sem er fyrir utan kannski Vestmannaeyjar, svona fallegasta vallarstæði á landinu, í fljótu bragði. En dómararnir mátu það 40 mínútum fyrir leik að hann væri bara á floti og hættulegur þannig að það var fært yfir á glæsilegt gervigras. Ég verð að hrósa bæjaryfirvöldum hérna í Hveragerði fyrir geggjaða aðstöðu. Þetta er alveg til fyrirmyndar, frábær grasvöllur og svo tveir gervigrasvellir að framan, annar aðeins minni og hinn í fullri stærð. Bara frábærar aðstæður hérna og bara rigning og smá rok hérna upp á íslenskt sumar."
Dalvík/Reynir er komið í pottinn fyrir drátt næstu umferðar Fótbolta.net-bikarsins og Hörður vonast til að fá heimaleik.
„Nei, bara fá heimaleik. Við ferðumst ansi mikið á sumrin. Og svona ferðalag í miðri viku er erfitt. Einmitt er það bara gaman, þú veist, gaman að koma og spila hérna. Ég hef aldrei þjálfað hérna og margir af leikmönnunum aldrei spilað hérna. Það er bara skemmtilegt við þetta. En heimaleikur væri ákjósanlegur, þarna á þriðjudeginum eftir verslunarmannahelgi."
Sagði Hörður við fréttamann Fótbolta.net eftir leik.