Fotbolti.net
07.07.26 - 19:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Það er verið að gefa Argentínu bikarinn"

Mostafa Ziko

Mostafa Ziko

Canon

Mynd: EPA

Mostafa Ziko, sem skoraði annað mark Egypta, í grátlegu 3-2 tapi gegn Argentínu í 16-liða úrslitum á HM í kvöld var mjög reiður eftir leikinn.

Egyptaland náði tveggja marka forystu en Argentína skoraði þrjú mörk á 13 mínútna kafla í blálokin og unnu ótrúlegan endurkomusigur.
Egyptar voru brjálaðir yfir sigurmarkinu þar sem þeir töldu að brotið hafi verið á Mohamed Salah inn í teig Argentínu í aðdragandanum. Ziko skoraði mark eftir um klukkutíma leik sem var dæmt af þar sem brotið var á Lisandro Martinez hinu megin á vellinum í aðdraganda marksins.

„Dómarinn er ósanngjarn, Guð nægir mér og er besti maðurinn til að ráða málunum. Hann er að sóa fyrirhöfn heillar þjóðar. Það er verið að gefa Argentínu bikarinn," sagði Ziko.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.