Veikindi herja á herbúðir Noregs

Unnu Brasilíu á sunnudag.

Mynd: EPA

Unnu Brasilíu á sunnudag.

Mynd: EPA
Nokkrir leikmenn Noregs hafa fundið fyrir slappleika og ertingi í hálsi síðustu daga.
Stale Solbakken, landsliðsþjálfari Norðmanna, segist þó ekki telja að um flensu sé að ræða, heldur segir hann að mikil ferðalög liðsins og þreyta hafi haft áhrif á leikmenn.

Jörgen Strand Larsen missti af fyrsta leik liðsins í riðlakeppninni eftir að hafa verið með hita. Þá missti Marcus Holmgren Pedersen af sigrinum frækna gegn Brasilíu vegna veikinda.
Solbakken hóstaði mikið á blaðamannafundi eftir tapið gegn Frökkum og sagði að ekki væri óeðlilegt að væg veikindi hefðu breiðst út í 50 manna teymi Norðmanna.
Noregur mætir Englandi í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins klukkan 21:00 næstkomandi laugardag.