Gatorade bikar Fótbolta.net: Dalvík/Reynir vann Hamar

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hamar 0 - 2 Dalvík/Reynir
0-1 Magnús Máni Sigursteinsson ('45 )
0-2 Elvar Máni Guðmundsson ('68 )
Lestu um leikinn
0-1 Magnús Máni Sigursteinsson ('45 )
0-2 Elvar Máni Guðmundsson ('68 )
Lestu um leikinn
Dalvík/Reynir er komið áfram í 8-liða úrslit Gatorade-bikars Fótbolta.net en liðið lagði Hamar á útivelli í kvöld.
Stefán Þór Hannesson í marki Hamars var í stuði í byrjun leiks og varði vel í tvígang. Hamar sótti í sig veðrið og Einar Ari Ármannsson í marki Dalvíkur/Reynis átti góða vörslu undir lok fyrri hálfleiks.
Það voru hins vegar gestirnir sem náðu forystunni áður en fyrri hálfleik lauk. Magnús Máni Sigursteinsson skoraði eftir darraðadans inn á teig Hamars.
Hamar vildi fá vítaspyrnu strax í upphafi seinni hálfleiks en ekkert dæmt.
Elvar Máni Guðmundsson bætti öðru marki Dalvíkur/Reynis við. Máni Snær Benediktsson minnkaði muninn fyrir Hamar undir lokin. Nær komust þeir ekki og Dalvík/Reynir fór með sigur af hólmi og er komið áfram í 8-liða úrslit.