Oliver braut sama bein - Stefnir á að spila aftur á tímabilinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Oliver Heiðarsson, framherji KA, varð fyrir því óláni á fimmtudag að brjóta bein í ristinni og verður hann frá vegna meiðslanna næstu mánuðina.
Oliver fór fyrir rúmu ári í aðgerð vegna sömu meiðsla, en hann þarf ekki að fara í aðgerð þetta sinn. Þá var hann leikmaður ÍBV.
Oliver er á hækjum og í samtali við Fótbolta.net vonast hann eftir því að spila aftur áður en tímabilið klárast í lok október.

TENGT EFNI
Oliver líklega brotinn - „Svekkjandi að missa hann í langtímameiðsli"
„Það er erfitt að segja eitthvað um endurkomuna, við horfum á nokkrar vikur í senn og tökum stöðuna. Ég er brattur á að ná að spila aftur á þessu tímabili," segir Oliver sem samdi við KA í vor og gerði þá þriggja ára samning.