Þór skákaði bræðrum sínum og föður

Þór fagnar marki sínu um helgina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Núverandi forseti ÍSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Willum Þór yngri lék 28 leiki í deildinni fyrir Breiðablik og skoraði 6 mörk áður en hann fór í atvinnumennsku.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjólfur skoraði í sínum átjánda leik fyrir Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór fagnar marki sínu um helgina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann varð jafnframt sá fjórði í fjölskyldunni því faðir hans, Willum Þór Þórsson, núverandi forseti ÍSÍ, er líka á markalista deildarinnar.
Þessi frétt er hluti af pistli Víðis Sigurðssonar sem birtist 6. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn er í heild sinni hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Hægt er að lesa umfjöllunina í heild sinni í nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.

Víðir Sig: 13. umferð Bestu deildar - Fræknir feðgar, fjórir Ögmundar og Hödda Magg ógnað
Eins og bræðurnir og landsliðsmennirnir Willum Þór Willumsson og Brynjólfur Willumsson sem báðir leika í hollensku úrvalsdeildinni, með Nijmegen og Groningen.
Þór skákaði hins vegar bæði bræðrum sínum og föður því hann varð fljótastur þeirra allra til að skora í efstu deild. Þetta var aðeins annar leikur hins 17 ára gamla Þórs með Blikunum í deildinni.
Willum Þór faðir hans skoraði í sínum sjöunda leik, fyrir KR gegn ÍA árið 1981, Willum Þór bróðir hans skoraði í sínum tíunda leik, fyrir Breiðablik gegn ÍBV árið 2018, og Brynjólfur þurfti að bíða lengst því hann skoraði í sínum 18. leik fyrir Breiðablik í deildinni, gegn KA árið 2019.
Faðirinn, Willum Þór, á langlengstan feril að baki í deildinni af þeim feðgum en hann lék 160 leiki fyrir KR, Breiðablik og Þrótt og skoraði í þeim 23 mörk. Willum Þór yngri lék 28 leiki í deildinni fyrir Breiðablik og skoraði 6 mörk áður en hann fór í atvinnumennsku og Brynjólfur lék 41 leik fyrir Breiðablik og skoraði 7 mörk. Þór er kominn með eitt mark eftir aðeins tvo leiki.
Á stuðningsmannavefnum Blikar.is er sagt frá því að þetta sé annað bræðraþríeykið í sögu Breiðabliks sem skorar í efstu deild karla. Áður hafi bræðurnir Jóhann Grétarsson (2 mörk), Sigurður Grétarsson (31) og Arnar Grétarsson (20) allir skorað fyrir Blika í deildinni. Faðir þeirra, Grétar Kristjánsson, skoraði 20 mörk fyrir félagið í næstefstu deild á árunum 1960-1967.

Núverandi forseti ÍSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Willum Þór yngri lék 28 leiki í deildinni fyrir Breiðablik og skoraði 6 mörk áður en hann fór í atvinnumennsku.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjólfur skoraði í sínum átjánda leik fyrir Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð





